Stjörnumerkin

Hvaða stjörnumerki er ég?

Stjörnumerkið þitt, eða sólarmerkið, ræðst af því hvar sólin var á dýrahringnum daginn sem þú fæddist. Veldu fæðingardaginn þinn og sjáðu hvaða merki á þig.

Stjörnumerkin og dagsetningar þeirra

Á mörkum tveggja merkja

Sólin skiptir ekki um merki á nákvæmlega sama degi ár hvert. Ef þú fæddist dagana sem merkin mætast, til dæmis 22. eða 23. október, getur munað einum degi. Fæðingarkortið sker úr um það, því það reiknar stöðu sólar út frá fæðingarári, stund og stað.

Reikna fæðingarkortið

Sólarmerki, tunglmerki og rísandi merki

Sólarmerkið er það sem flest eiga við þegar spurt er um stjörnumerki. Það lýsir kjarnanum og því sem drífur þig áfram. Tunglmerkið segir meira um tilfinningar og það sem veitir þér öryggi, og rísandi merkið um fyrstu kynni og hvernig þú mætir heiminum. Þú finnur öll þrjú í fæðingarkortinu.

Fæðingarkortið

Hvaða stjörnumerki eru í hverjum mánuði?

Janúar: Steingeitin (til og með 19. janúar) og Vatnsberinn (frá 20. janúar).

Febrúar: Vatnsberinn (til og með 18. febrúar) og Fiskarnir (frá 19. febrúar).

Mars: Fiskarnir (til og með 20. mars) og Hrúturinn (frá 21. mars).

Apríl: Hrúturinn (til og með 19. apríl) og Nautið (frá 20. apríl).

Maí: Nautið (til og með 20. maí) og Tvíburarnir (frá 21. maí).

Júní: Tvíburarnir (til og með 20. júní) og Krabbinn (frá 21. júní).

Júlí: Krabbinn (til og með 22. júlí) og Ljónið (frá 23. júlí).

Ágúst: Ljónið (til og með 22. ágúst) og Meyjan (frá 23. ágúst).

September: Meyjan (til og með 22. september) og Vogin (frá 23. september).

Október: Vogin (til og með 22. október) og Sporðdrekinn (frá 23. október).

Nóvember: Sporðdrekinn (til og með 21. nóvember) og Bogmaðurinn (frá 22. nóvember).

Desember: Bogmaðurinn (til og með 21. desember) og Steingeitin (frá 22. desember).